top of page
smellið hér til að lesa kafla úr bókinni: https://issuu.com/forlagid/docs/20_tilefni_til_dagdrykkju

20 tilefni til dagdrykkju

SKU: 0127
kr2,290Price
Quantity
  • Vantar þig tilefni til dagdrykkju? Hér eru nokkur: Ömurlegir karlmenn, myglaðir draumar, hreyfiblinda, atvinnuleysi, kynlífsboð og -bönn og svo framvegis og svo framvegis …

    Tobba Marinós heillaði fjölda manns með bókum sínum Makalaus og Lýtalaus. Hér hleypir hún lesendum alveg inn að kviku með drepfyndnum, vandræðalegum og sorglegum sögum af sjálfri sér sem hver um sig gefur fullt tilefni til að skrúfa tappa af flösku og hella í glas.

    „Nýjasta bók Tobbu Marinós er nokkuð frábrugðin fyrri bókum hennar (Makalaus og Lýtalaus) en alveg jafnfyndin og skemmtileg. Hún er dýpri og einlægari, en ég skellti samt upp úr nokkrum sinnum og táraðist líka … Mannlýsingar Tobbu eru lifandi og bókin vel skrifuð og bráðskemmtileg, hún er hreinlega alveg frábær.“
    Guðríður Haraldsdóttir / Vikan

    ***
    „Bókin er samsett af stuttum köflum sem eru margir hverjir bráðskemmtilegir og lýsa sýn hennar á tilveruna hverri stundu þar sem gripið er niður. Það er gaman að fá slíka sýn frá sjónarhóli barns og unglins. Orðfæri Tobbu er hnyttið og skrúðugt … helsta markmið [bókarinnar] væri að gleðja lesendur um skamma stund. Það tókst og má hún vel við una því þeir eru sárafáir sem búa yfir þessum eiginleika í íslensku samfélagi.“
    Kristjana Guðbrandsdóttir / DV

    „Hér er á ferðinni bók sem fékk mig bæði til að hlægja og tárast og var í alla staði mjög hress og skemmtileg … Þarf einhver að vera drepinn eða eiga hræðilega æsku til að það sé kjöt á beinunum? Þarf ævisaga að vera yfirfull af pólitík eða ástarsaga að enda með sorg og harmi til að það sé kjöt á beinunum? Er ekki bara hressandi tilbreyting að lesa um manneskju sem kann að sjá það skoplega við lífið, lendir í allskyns ævintýrum, er almennt bara ánægð með tilveruna og brosir framan í heiminn? Er það eitthvað innihaldsminna eða ómerkilegra líf?“
    Kolbrún Ósk Skaftadóttir/ Kvennablaðið

    „Þetta gerðist allt áður en ég kom til. Hún er miklu eðlilegri í dag.“
    Karl Sigurðsson, sambýlismaður

    „Það er lítið við þessu að gera.“
    Marinó Björnsson, faðir

    „Hún var virkilega skemmtilegt barn en þessi bók er þvæla.“
    Regína Birkis, amma

  • b-facebook
  • Twitter Round
  • B-Pinterest
bottom of page