Á frummáli: Dewey : the small-town library cat who touched the world Bókin er uppseld hjá útgefanda.
Dewey : litli bókasafnskötturinn sem sneri öllu á
Hversu mikil áhrif getur eitt dýr haft? Líf hversu margra einstaklinga getur ein kisulóra snortið? Hvernig getur yfirgefinn köttur umbreytt
litlu bókasafni í heila miðstöð, laðað að fólk og ferðamenn, fyllt dæmigerðann bandarískan smábæ hugmóði, skapað tengsl milli fólks í heilu héraði og orðið að lokum heimsfrægur?Á ísköldum janúarmorgni árið 1988 fannst lítill og hrakinn kettlingur í skilalúgu almenningsbókasafns í bænum Spencer í Iowa.
Það var bókavörðurinn Vicki Myron sem koma auga á hann í hnipri ofan í bókahrúgu. Frá þessari stundu hófst vinátta sem stóð í 19 ár í
gegnum súrt og sætt.Ævisaga Deweys hefur vakið verðskuldaða athygli og kátínu, enda hér á ferð einstök og mannbætandi frásögn um sigra og sorgir fólks
þar sem dýrmæt vinátta og hollusta lítils kattar skipti sköpum.