Kristján Þórður hefur tvívegis verið tilnefndur til Grímunnar-Íslensku leiklistarverðlaunanna sem leikskáld ársins, fyrir Böndin á milli okkar árið 2005 og Fyrir framan annað fólk árið 2010.
Húsin og göturnar
Kristján Þórður Hrafnsson er fæddur árið 1968. Hann er ljóðskáld, skáldsagnahöfundur, leikskáld og þýðandi.
Kristján Þórður stundaði nám í bókmenntum við The New School for Social Research í New York veturinn 1988-1989 og lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1992. Hann lauk meistaraprófi í bókmenntum frá Sorbonneháskóla í París árið 1995.
Kristján Þórður hefur sent frá sér ljóðabækurnar Í öðrum skilningi (1989), Húsin og göturnar (1993), Jóhann vill öllum í húsinu vel og fleiri sonnettur (1997) og Tveir Elvis Presley aðdáendur og fleiri sonnettur (2015). Hann hefur einnig skrifað skáldsögurnar Hugsanir annarra (2002) og Hinir sterku (2005).
Leikrit Kristjáns Þórðar Leitum að ungri stúlku hlaut 1. verðlaun í hádegisleikritasamkeppni Leikfélags Íslands árið 1998 og var frumsýnt í Iðnó árið eftir. Þjóðleikhúsið sýndi leikrit hans Já, hamingjan (2001) og Böndin á milli okkar (2004). Leikrit hans Fyrir framan annað fólk var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu árið 2009. Hann hefur einnig skrifað leikrit fyrir Útvarpsleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík.
Kristján Þórður hefur tvívegis verið tilnefndur til Grímunnar-Íslensku leiklistarverðlaunanna sem leikskáld ársins, fyrir Böndin á milli okkar árið 2005 og Fyrir framan annað fólk árið 2010.
Kristján Þórður skrifaði ásamt Óskari Jónassyni kvikmyndaleikstjóra handritið að kvikmyndinni Fyrir framan annað fólk sem byggt er á samnefndu leikriti. Áætlað er að frumsýna myndina árið 2016.
Kristján Þórður hefur þýtt fjölmörg leikrit fyrir Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og ýmis önnur leikhús og leikhópa, meðal annars eftir Eric-Emmanuel Schmitt, David Hare, Yasminu Reza, Terrence McNally, Mike Leigh, Bernard-Marie Koltès og Arthur Miller.