top of page
Á frummáli: Flaskepost fra P
Bókin hlaut Glerlykillinn, norrænu glæpasagnaverðlaunin 2010

Flöskuskeyti frá P

SKU: 0088
kr750Price
Quantity
  • Á lögreglustöðinni í Wick, nyrst í Skotlandi, hafði óralengi staðið rispuð flaska með bréfi í. Enginn gaf henni gaum eða velti fyrir sér hvað orðið þýddi sem mátti lesa gegnum glerið: HJÁLP.

    Þegar Carl Mørck í Deild Q hjá dönsku lögreglunni fær flöskuskeytið í hendur telur hann að um barnabrek sé að ræða en því betur sem Assad aðstoðarmaður hans skoðar velkt skeytið, því betur átta þeir sig á skilaboðum þess, að tveimur drengjum hafi verið rænt á tíunda áratugnum. En hvaða drengir voru það og af hverju var hvarf þeirra aldrei tilkynnt? Smám saman flækjast Carl og Assad í net gáfaðs og tilfinningalauss mannræningja – sem reynist enn vera að.

    Flöskuskeyti frá P er af mörgum talin  magnaðasta saga Jussi Adler-Olsen og hlaut Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan árið 2010.

    ****
    „… vel samin bók og æsispennandi … Svo góð er þessi bók að það er ekki hægt að leggja hana frá sér ólesna …  einfaldlega besta spennusagan á markaðnum nú um stundir.“

    Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið

    * * * *
    „Olsen er mikill sögumaður og vefur söguþráðinn af list. Sögur hans eru afburða afþreying …“
    Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn

  • b-facebook
  • Twitter Round
  • B-Pinterest
bottom of page