top of page
„Ein skemmtilegasta og frjóasta skáldsaga síðustu ára.“
Þröstur Helgason / Morgunblaðið

Parísarhjól

SKU: 0071
kr1,200Price
Quantity
  • Sigurður Pálsson sló í gegn með skáldsögunni Parísarhjól og ekki síður með leikriti sínu Edith Piaf sem  notið hefur fádæma vinsælda.

    Í þessari áhrifamiklu og fallegu sögu segir frá sumri í lífi ungs íslensks myndlistarmanns, Viktors Karlssonar. Hann tekst á við mikla sorg þegar sú manneskja sem stendur honum næst deyr skyndilega. Á þeim tímamótum heldur hann til Parísar og kynnist þar sérkennilegum persónum: nágrannanum Alex, Botticelli systrum, Símoni heimspekingi, Sabrínu sem dansar nakin, að ógleymdri Delphine sem verður brátt hin aðalpersónan í sögunni. Morgunbænin sem Símon kennir honum verður leiðarstefið í leit Viktors að því sem gefur lífinu gildi: „Guð, gefðu mér gleði, kjark og góða samvisku …“

    Þræðir sögunnar eru skýrir og þétt ofnir. Hér nýtur stílistinn og sögumaðurinn Sigurður Pálsson sín til fulls, tónn sögunnar er áleitinn, borinn uppi af trega og birtu.

    Parísarhjól er allt í senn: hlý, alvarleg og erótísk saga.

    Kennsluleiðbeiningar við bókina má nálgast hér.

     

    „Ein skemmtilegasta og frjóasta skáldsaga síðustu ára.“

    Þröstur Helgason / Morgunblaðið

    „ … Skemmtileg … Mjög gefandi … Meistaraleg vel skrifuð … og henni ber tvímælalaust að skipa á bekk með ýmsu því besta sem íslenskar fagurbókmenntir hafa að bjóða.“

    Ólína Þorvarðardóttir / DV

    „ … Full af seiðmagni, næmu innsæi og skáldlegri myndvísi.“

    Árni Óskarsson / Ríkisútvarpið

  • b-facebook
  • Twitter Round
  • B-Pinterest
bottom of page