Einnig til Ritgerðir I og II
Ritgerðir III Mao Tse-tung
Ritgerðir Mao Tse-Tung þýddar á Íslensku í þremur bindum. Þetta er þriðja bindið.
Kínverska byltingin er svo gildur þáttur í sögu tuttugustu aldar og ferill hennar svo sérstæður, að enginn sá sem hefur áhuga á alþjóðamálum og pólitík - hvað þá heldur á þróun sósíalismans getur leyft sér að vera með öllu ófróður um þetta efni. Ritgerðir Mao Tse-tung eru með þýðingarmestu heimildum um kínversku byltinguna, um leið og þær sýna lesendum mynd af miklum stjórnmálamanni og einum stórbrotnasta lýðstjóra sögunnar. „Stór
bókasöfn,“segir Bandaríkjamaðurinn Edgar Snow, .,eru til sem eiga að „útskýra" Kína. En lærdómsríkustu bækurnar sem ritaðar hafa verið til að svara spurningunni hversvegna snérist Kína til kommúnisma? eru sennilega eftir þann mann sem leiddi Kínverja þangað sem þeir eru nú komnir: Mao Tse-tung."Þriðja bindi af ritgerðum Maos hefst á hinni frægu „skýrslu um rannsókn á bændahreyfingunni i Húnan" frá 1927, en hún hefur af sumum vestrænum höfundum verið kölluð mikilvægasta skjal i nútímasögu Kínverja. Aðrar helztu ritgerðir þessa bindis eru Stjórnlistarvandamál i byltingarstríði Kína, Um leiðréttingu rangra hugmynda í flokknum, og Hlutverk kommúnistaflokks Kína í þjóðarstríðinu, en þar að auki eru hér ýmsar af frægustu smágreinum Mao Tse-tung. Nýjasta greinin er frá því í maí 1970.