top of page
Allar þrjár bækurnar sem komu út saman í pakka.

Ritgerðir Mao Tse-tung I-III

SKU: 0126
kr2,900Price
Quantity
  • Ritgerðir Mao Tse-Tung þýddar á Íslensku í þremur bindum. Hérna eru öll þrjú bindin saman í pakka.

    Kínverska byltingin er svo gildur þáttur í sögu tuttugustu aldar og ferill hennar svo sérstæður, að enginn sá sem hefur áhuga á alþjóðamálum og pólitík - hvað þá heldur á þróun sósíalismans getur leyft sér að vera með öllu ófróður um þetta efni. Ritgerðir Mao Tse-tung eru með þýðingarmestu heimildum um kínversku byltinguna, um leið og þær sýna lesendum mynd af miklum stjórnmálamanni og einum stórbrotnasta lýðstjóra sögunnar. „Stór
    bókasöfn,“segir Bandaríkjamaðurinn Edgar Snow, .,eru til sem eiga að „útskýra" Kína. En lærdómsríkustu bækurnar sem ritaðar hafa verið til að svara spurningunni hversvegna snérist Kína til kommúnisma? eru sennilega eftir þann mann sem leiddi Kínverja þangað sem þeir eru nú komnir: Mao Tse-tung."

    Fyrsta bindi þessa safns hefur inni að halda bæði heimspekilegar og stjórnmálalegar ritgerðir. Meðal hinna síðartöldu eru Nýtt lýðræði (1939) og Um samsteypustjórn (1945), þar sem pólitískar kenningar og aðferðir Mao Tse-tung frá þeim tíma þegar kommúnistaflokkurinn var að skapa, forsendumar að sigri byltingarinnar, koma skýrt í ljós.

    Annað bindi þessa bindis er ritgerðir frá árunum 1945-1949, því tímabili sem einkenndist af sigurgöngu byltingarinnar. Þar á meðal eru nokkrar greinar í tilefni af frægri „hvítbók“ um málefni Kína sem bandaríska utanríkisráðuneytið gaf út í ágúst 1949.

    Þriðja bindi af ritgerðum Maos hefst á hinni frægu „skýrslu um rannsókn á bændahreyfingunni i Húnan" frá 1927, en hún hefur af sumum vestrænum höfundum verið kölluð mikilvægasta skjal i nútímasögu Kínverja. Aðrar helztu ritgerðir þessa bindis eru Stjórnlistarvandamál i byltingarstríði Kína, Um leiðréttingu rangra hugmynda í flokknum, og Hlutverk kommúnistaflokks Kína í þjóðarstríðinu, en þar að auki eru hér ýmsar af frægustu smágreinum Mao Tse-tung. Nýjasta greinin er frá því í maí 1970.

  • b-facebook
  • Twitter Round
  • B-Pinterest
bottom of page