top of page

Spor í sandi

SKU: 0191
kr5,900Price
Quantity
  • Steinn Steinarr er skáldanafn Aðalsteins Kristmundssonar. Steinn fæddist hinn 13. október árið 1908 og eru því í ár liðin hundrað ár frá fæðingu hans. Steinn fæddist á Laugalandi í Nauteyrarhreppi við Ísafjarðadjúp en ólst að mestu upp í Saurbæ í Dölum en fluttist til Reykjavíkur átján ára gamall.

    Þegar Steinn kom til Reykjavíkur var atvinnuleysi og kreppa yfirvofandi. Steinn var auk þess fatlaður á handlegg sem gerði honum alla líkamlega vinnu erfiða. Framtíðarhorfur hans virtust ekki glæsilegar enda hafði skólaganga hans verið stutt. Steinn fékk því að kynnast fátækt á þessum árum en komst einnig í kynni við ung skáld og listamenn sem hittust reglulega í Unuhúsi. Á þessum erfiðu tímum létu róttækir fylgismenn sósíalisma mikið að sér kveða, ekki síst skáldin, og Steinn gekk til liðs við þá. Þess sjást skýr merki í fyrstu ljóðabók hans, Rauður loginn brann sem út kom árið 1934. Róttæk ljóð sátu þar í fyrirúmi eins og nafn bókarinnar gefur til kynna. Ljóðin í þessari fyrstu bók Steins eru langflest hefðbundin (með rími, ljóðstöfum og hefðbundinni hrynjandi). En auk hinna róttæku ljóða um hlutskipti lítilmagnans bar mikið á vonleysi og trega. Það er eins og skáldinu finnist á stundum fátt merkilegt við líf mannanna, tilgangurinn óljós og mannkynið statt í eins konar völundarhúsi sem erfitt er að rata um og útgönguleiðin týnd.

    Árið 1948 kom út ljóðabókin Tíminn og vatnið, alls 13 ljóð (en urðu 21 í lokagerðinni árið 1956). Marga rak í rogastans. Það er nánast ekki hægt að skilja þessi ljóð eftir hefðbundnum leiðum; það verður að skynja þau. Það er eins og allar reglur séu brotnar nema hvað stundum er rím og oftast einhverjir stuðlar. Engin leið er að ráða í endanlega merkingu ljóðanna en margir sjá í þeim mikinn trega, hugsanlega djúpa ástarsorg. Með þessari bók braut Steinn blað í ljóðagerð Íslendinga. Hann tók drjúgan þátt í umræðum um ljóðagerð samtímans enda var um miðja síðustu öld háð grimmileg barátta um ljóðagerðina; átti að kasta á glæ hinu hefðbundna ljóði með rími og stuðlum en innleiða í staðinn frjáls ljóð (atómljóð)? Um það var tekist á.

    Steinn var ekki í vafa; leyfum ljóðinu að vera frjálst. Steinn kvæntist árið 1948 Ásthildi Björnsdóttur og bjuggu þau í litlu húsi í Fossvoginum ásamt hundi og nokkrum hænum. Steinn lést 25. maí árið 1958 og eru því liðin fimmtíu ár frá dauða hans. Um fá skáld Íslendinga hefur staðið jafnmikill styrr sem Stein Steinarr. Nú telja menn hann flestir merkasta ljóðskáld okkar á 20. öld. Hann hafði gríðarleg áhrif á ungu skáldin sem gerðu garðinn frægan á eftir honum og tók drjúgan þátt í samfélagi skálda og listamanna sem settu svip á bæinn og sátu gjarna á kaffihúsum og ræddu málefni dagsins.

  • b-facebook
  • Twitter Round
  • B-Pinterest
bottom of page