top of page
ATH þetta er Kilja. Einnig til í harðspjalda bandi

Í Barndómi

SKU: 0007
kr1,690Price
Quantity
  • Í barndómi (1994) er bók um æskuminningar Jakobínu frá Hælavík á Hornströndum – en þar fæddist hún og ólst upp eins og kemur fram hér.Bókin er þó ekki hefðbundin sjálfsævisaga því frásögnin er sviðsett og stílfærð. Sögukonan sem segir frá raðar saman minningabrotum sem hún setur fram í formi nokkurs konar ferðasögu. Hún líkir upprifjuninni við ferðalag og heimsækir bernskuheimili sitt þar sem hún sér fjölskyldu sína og sjálfa sig sem barn. Þessi gamla kona er ónafngreind og í raun segir einungis samhengi bókarinnar, markaðssetning og vitneskja um höfundinn okkur að þetta sé sjálfsævisaga. Frásögnin er ólík hefðbundnum ævisögum þar sem greint er frá minningum og æviþáttum í tímaröð og ef bókin væri ekki í þessu samhengi væri hún að öllum líkindum einfaldlega talin skáldsaga. Í barndómi getur því talist til bókmennta sem kallaðar hafa verið kallaðar skáldævisögur.

  • b-facebook
  • Twitter Round
  • B-Pinterest
bottom of page